Dimmir frá Álfhólum
| Jarpur, fæddur 2003. Faðir: Tígur frá Álfhólum (8.13) Móðir Dimma frá Miðfelli (7.90) Héraðssýning á Sörlastöðum 2008: Bygging: 7.82 Hæfileikar: 8.40 Aðaleinkunn: 8.17 Blub 112 |
|
Héraðssýning á Sörlastöðum
Dagsetning móts: 02.06.2008 - Mótsnúmer: 07
Íslenskur dómur
IS-2003.1.84-674 Dimmir frá Álfhólum
Sýnandi: Sara ÁstþórsdóttirMál (cm):142 131 135 64 143 40 47 426,6 31,0 19,0 Hófa mál:V.fr. 8,8 V.a. 8,1Aðaleinkunn: 8,17 |
Sköpulag: 7,82 |
Kostir: 8,40 |
Höfuð: 7,5 Háls/herðar/bógar: 7,5 1) Reistur D) Djúpur Bak og lend: 8,0 2) Breitt bak 6) Jöfn lend A) Beint bak Samræmi: 8,0 5) Sívalvaxið Fótagerð: 8,5 2) Sverir liðir 4) Öflugar sinar Réttleiki: 7,5 Framfætur: A) Útskeifir kýrfættur Hófar: 8,0 Prúðleiki: 6,5 |
Tölt: 8,5 1) Rúmt 2) Taktgott 3) Há fótlyfta Brokk: 8,0 1) Rúmt 5) Há fótlyfta E) Fjórtaktað/Brotið Skeið: 8,0 4) Mikil fótahreyfing Stökk: 8,0 1) Ferðmikið Vilji og geðslag: 9,0 2) Ásækni 4) Þjálni 6) Gleði Fegurð í reið: 8,5 4) Mikill fótaburður Fet: 7,5 1) Taktgott Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 7,0 |
Dimmir er frábærilega geðgóður, flugviljugur og var mjög auðveldur í tamningu, afar taugasterkur og hreinskiptinn hestur sem aldrei hefur svo mikið sem sett bakið í knapann hvað þá meir. Býr yfir virkilega skemmtilegri jafnvígri alhliða ganghæfni og er flugrúmur á öllum gangi.
Byggingin er sterkleg, bakið er stinnt og sterkt enda var hann ekki í vandræðum með að halda á knapa frá fyrsta degi. Fótagerð er hraust, það hvorki sígur á framfætur né múkkast hann undir álagi.
Frambygging telst í meðallagi en hann er samt 7cm hærri á herðar en lend og þ.a.l rennur ekki fram á hann hnakkurinn. Skrokkurinn er alltaf sívalur og léttur á öllum árstíma.
Réttleiki fóta er mjög góður burtséð frá tölum. Hann hefur alltaf verið laus við allt ágripavesen sem er stór kostur þegar alhliða hestur á í hlut.
Dimmir er einnig spennandi kostur fyrir ræktendur sem eru að leita að góðum stóðhesti með öðruvísi ættartré. Hann er jú undan Tígur sem er úr gömlu hornfirsku heimaræktuninni í Álfhólum út af Nökkva frá Hólmi og undan fótaburðahryssunni Dimmu frá Miðfelli sem er undan Hrafni frá Hrafnhólum og Flosadótturinni Brönu frá Miðfelli sem er af hornfirsku kyni líka. Það eru flestir sammála að hann beri með sér sterkan svip þessa kyns.
Hann er lítið skyldur þeim ættlínum sem eru ríkjandi í dag. Hann er ekkert út af Orra eða með annað Sauðárkróksblóð, ekki skyldur Ófeig frá Flugumýri og svo mætti lengi telja. Hrafn frá Holtsmúla er þó langafi hans og aðeins kemur Hörður frá Kolkuósi fyrir í ættartöflunni hans.
Dimma móðir hans hefur skilað öllum 5 afkvæmum sínum á tamingaraldri á kynbótabrautina fyrir utan Dagrúnu sem slasaðist veturgömul, þ.a fjórum í fyrstu verðlaun. Meðaleinkunn þeirra fyrir tölt, fegurð í reið og vilja er nálægt 9 en það eru þeir eiginleikar sem ég horfi mest til þegar ég skoða einkunnir kynbótahrossa. Myndin er af Dívu systur Dimmis í töltkeppni 5 vetra gömul, 2009 en þá skoraði hún 7.37 hæðst í forkeppni.
Dimmir from Álfhólar is mostly from the Hornafjörður breeding line so he is really exiting choose for breeders who have intrest in rare broodlines. He has really grate caracter, was easy in training, has good movements and really equal gates that can makes him sucsessful compation horse in future! He is strongly built, with good legs and espesially his back who I think is most strongest I know and it is like he is made to carry a rider! My goal is to breed selfcarring horse and he is really like that!
Verð á folatolli undir Dimmir sumarið 2010 er 55.000 með vsk og umsýslugjaldi.
Flettingar í dag: 247
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 1094
Gestir í gær: 277
Samtals flettingar: 883289
Samtals gestir: 187987
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 06:37:08
ÁLFHÓLAR | SARA ÁSTÞÓRSDÓTTIR | 861 HVOLSVÖLLUR - ÍSLAND | Tel: (+354) 898 8048 | ALFHOLAR@ALFHOLAR.IS
