14.06.2008 02:33
Dimmir stóðst prófið!
Já það var sko rótað yfir gamla dóminn í gær í Hafnafirði!!! Dimmir mætti hvæsandi í braut og þeir kunnu loks að meta í dómpallinum að sjá svona glaðan og sprækan fola, voru ekkert að sitja á tölunum lengur og létu þær flakka með glöðu geði
Ég skal þó alveg viðurkenna að það var nú töluvert meiri sláttur á kappanum í gær heldur en á Hellu og ekki bara dómaraskandall að hann skyldi vera svona mikið lægri þar.
Hér kemur dómurinn og núna þekki ég hestinn á dómblaðinu. Ég var búin að vera yfirlýsingaglöð í góðra vina hópi og sagðist ætla að sýna hann í 8.50 fyrir hæfileika í vor svo þetta er allt í áttina. Svo er bara að halda áfram að bæta sig fram að landsmóti og gera enn betur. Hann verður samt væntanlega ekki í neinum toppslag þar með þessa byggingatölu sína en ánægjulegt engu að síður að hann fékk fararleyfi til að keppa við Orrabaukana þar 
Héraðssýning á Sörlastöðum
Dagsetning móts: 02.06.2008 - Mótsnúmer: 07
Íslenskur dómur
IS-2003.1.84-674 Dimmir frá Álfhólum
Sýnandi: Sara Ástþórsdóttir
Mál (cm):
142 131 135 64 143 40 47 42 6,6 31,0 19,0Hófa mál:
V.fr. 8,8 V.a. 8,1Aðaleinkunn: 8,17
Sköpulag: 7,82 |
Kostir: 8,40 |
Höfuð: 7,5 Háls/herðar/bógar: 7,5 Reistur Djúpur Bak og lend: 8,0 Breitt bak Jöfn lend Beint bak Samræmi: 8,0 Sívalvaxið Fótagerð: 8,5 Sverir liðir Öflugar sinar Réttleiki: 7,5 Framfætur: Útskeifir kýrfættur Hófar: 8,0 Prúðleiki: 6,5 |
Tölt: 8,5 Rúmt Taktgott Há fótlyfta Brokk: 8,0 Rúmt Há fótlyfta Fjórtaktað/Brotið Skeið: 8,0 Mikil fótahreyfing Stökk: 8,0 Ferðmikið Vilji og geðslag: 9,0 Ásækni Þjálni Gleði Fegurð í reið: 8,5 Mikill fótaburður Fet: 7,5 Taktgott Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 5,0 |
Héraðssýning á Sörlastöðum
Dagsetning móts: 02.06.2008 - Mótsnúmer: 07
Íslenskur dómur
IS-2004.2.84-669 Díva frá Álfhólum
Sýnandi: Sara Ástþórsdóttir
Mál (cm):
146 141 65 144 28,0 18,5Hófa mál:
V.fr. 8,9 V.a. 8,4Aðaleinkunn: 7,84
Sköpulag: 7,96 |
Kostir: 7,76 |
Höfuð: 8,0 Bein neflína Háls/herðar/bógar: 8,0 Hátt settur Bak og lend: 7,5 Áslend Samræmi: 8,5 Fótahátt Fótagerð: 7,5 Réttleiki: 8,5 Afturfætur: Réttir Hófar: 8,0 Hvelfdur botn Prúðleiki: 6,5 |
Tölt: 8,5 Taktgott Há fótlyfta Brokk: 7,5 Há fótlyfta Ferðlítið Ójafnt Skeið: 5,0 Stökk: 8,0 Vilji og geðslag: 8,5 Ásækni Fegurð í reið: 8,5 Mikill fótaburður Fet: 6,5 Skrefstutt Framtakslítið Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 5,0 |
Litla systir stóð sig einnig býsna vel og vantar bara nokkrar kommur inná landsmót. Hafði aldrei mátað hana inná velli áður en hún gerði allt af fúsum vilja, þannig að þessi frammistaða hennar gefur bara góð fyrirheit.
Þar með eru öll 5 afkvæmi Dimmu sem eru á tamningaraldri komin með dóm, engin undir 7.75, tvö með fyrstu verðlaun, og Dívan á góðri leið nema að við látum staðar numið með hana og setjum hana í ræktun en sú ákvörðun verður tekin á næsta hluthafafundi með þeim Sigurði og Róberti
Ég skal alveg viðurkenna það fúslegar að ég hef meira gaman af því að hlaupa á eftir folöldum heldur en að þeytast eftir brautinni endalaust
Það skyggði smá á Hafnafjarðaferðina að Atorka þurfti að sitja eftir heima. Hún slasaðist fyrir 10 dögum síðan, á hestakerrunni hjá mér, fór undir slá og rústaði á sér bakinu. Vonandi verður hægt að sýna hana á síðsumarssýningu því hún var að verða þræl flott á tölti og brokki fór á slöttungs skeiði líka. Hefði getað lent öðru hvoru megin við áttuna.
Og svona í lokin af því ég var að tala um Orrabauka, þá var Leó að sýna í gær Orradóttur undan Bellu frá Kirkjubæ úr ræktun Markúsar í Hákoti, Veröld sem fór í 8.31 í aðaleinkunn og er hæðst fjögurra vetra hryssna inná LM enn sem komið er. Veröld er síðasta afkvæmi Bellu sem fórst fyrir 2 árum og því stórkostlegt fyrir Markús og Dóru að fá svona góða hryssu í lokin undan Bellu, til hamingju með þetta!
Eldra efni
- 2012
- Janúar (1)
- 2011
- Desember (2)
- Nóvember (1)
- Október (2)
- September (4)
- Ágúst (3)
- Júlí (4)
- Júní (1)
- Maí (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (1)
- Janúar (1)
- 2010
- Desember (4)
- Nóvember (1)
- Október (2)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (6)
- Maí (2)
- Apríl (2)
- Mars (2)
- Febrúar (1)
- Janúar (3)
- 2009
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (4)
- September (5)
- Ágúst (4)
- Júlí (5)
- Júní (6)
- Maí (2)
- Apríl (2)
- Mars (2)
- Febrúar (1)
- Janúar (5)
- 2008
- Desember (6)
- Nóvember (5)
- Október (5)
- September (3)
- Ágúst (2)
- Júlí (5)
- Júní (6)
- Maí (4)
- Apríl (4)
- Mars (3)
- Febrúar (3)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (7)
- Nóvember (7)
- Október (4)
- September (4)
- Ágúst (5)
- Júlí (3)
- 2006
ÁLFHÓLAR | SARA ÁSTÞÓRSDÓTTIR | 861 HVOLSVÖLLUR - ÍSLAND | Tel: (+354) 898 8048 | ALFHOLAR@ALFHOLAR.IS
