18.01.2012 20:26
Nýir eigendur
Nýja árið tekur á móti okkur með rysjóttu veðri, en afar fallegum dögum inná milli. Árið 2011 hefur verið viðburðarríkt en að fara að gera það sérstaklega upp er að bera í bakkafullann lækinn því flestum stórviðburðum hafa verið gerð góð skil í fyrri fréttum.
Salan var ekkert til að hrópa húrra fyrir framan af ári en þó var að fara eitt og eitt hross fram á sumar. En þegar haustaði hljóp heilmikið líf í hana og mörg hross skiptu um eigendur og hér eru nokkur dæmi:










Svo fyrir þá sem vilja komast hratt á tölti í framtíðinni er hér ein undan Asa frá Kálfholti, hryssa á sjötta vetur, Lind frá Baldurshaga. Video HÉR tekið eftir 3 vikna vetrarþjálfun en hún var þá búin að vera í fríi frá því í Júlí með tilheyrandi aukakílóum. Var fyrst tamin í fyrravetur og á mikið inni.
Allar upplýsingar alfholar@alfholar.is

Xenia og móðir hennar Dr. Anja eignuðust Vöku hennar Hrefnu Maríu núna í haust.
Þær mægður hafa verið í sambandi við okkur og gengur vel með Vöku í útlandinu sem er alltaf gaman að heyra.
Hér er video af Vöku og Hrefnu síðan á Ístölti 2011
Kraftur frá Strönd skipti líka um eigendur og er á leið til Swiss núna í vetur. Hann verður þó framan af í þjálfun þangað til hann fer út.
Hinn stóri og myndarlegi Solandus er kominn út til Slóveníu. Solandus er albróðir bleikblesóttu Sóllilju. Traustur og góður fjóragangari. Hér er skemmtilegt video af honum á youtube.

Sóldís var að lenda í Swiss núna í vikunni ásamt Hilmi frá Álfhólum sem því miður engin mynd er til af. Góð reiðhross sem eflaust eiga eftir að gleðja hina nýju eigendur mikið enda með eindæmum elskuleg og góð hross.
Kathy góð vinkona okkar frá Þýskalandi féll fyrir frábærri hryssu hjá vinum okkar í Ármóti. Ása frá Ármóti er hrikalega efnileg alhliða hryssa sem eflaust á eftir að vera mjög sterk í sportinu í framtíðinni. Hún er alsystir Ás frá Ármóti. Hér er mynd af henni og Ásu og John.
...og hér er nýr eigandi kominn á bak. Ása fer utan núna í febrúar.

Og Katharina vinkona Kathy fann sína draumahryssu í hesthúsinu á Álfhólum í sömu ferð, hina léttu og litfögru Litbrá frá Baldursshaga.

Og maður verður víst að týma einu og einu uppáhalds....Eldglóð Gásku og Bragadóttir fer þó ekki lengra en í næstu sýslu, en verður hér fram á vor fram yfir sýningar.
Fyrstu verðlauna hryssan Vaka frá Kanastöðum fór síðsumars.
Víkingssonurinn Nói vakti lukku hjá nýjum eigendum sínum í Þýskalandi, en það fuku nokkrir svona reiðhestar og hryssur hingað og þangað. Yljar manni alltaf um hjartarætur þegar maður fær email og skilaboð frá nýjum eigendum "Er ist ein tolles Pferd!! :)" ... I love him to death, he is so nice...
Við leggjum okkur í líma við að bjóða aðeins góð, traust, vel tamin hross sem okkur líka vel við sjálfum, til sölu og reynum að finna rétta hestinn handa hverjum. Við teljum það vera grunninn að að góðu orðspori. Við hikum ekki við að neita að selja, ef okkur finnst áhugasamur kaupandi ekki passa fyrir hestinn sem við bjóðum. Það er svo mikilvægt þegar mikið er selt í gegnum netið að það ríki fullkomið traust og það sé ekki stokkið á hverja einustu sölu sem kemur upp, án þess að spá í hvort hrossið komi til með að henta viðkomandi.
En það kemur hestur í hests stað og hérna fyrir neðan eru nokkur dæmi um hross sem eru á sölu hjá okkur...

Ketill frá Vakurstöðum, frábær fjórgangari og töltari sem hentar öllum. Mikið unninn hestur með einstakt geðslag og farsælan ferill í keppni að baki. Meira um Ketil HÉR.

Einn af Söru uppáhalds, Gaukur frá Strandarbakka, klárlega efni í alvöru fimmgangshest. Video HÉR og HÉR

Stormur frá Kanastöðum, traustur, risastór og skreffallegur alhliða hestur, Eðlistöltari. Meira um Storm HÉR
Svo fyrir þá sem vilja komast hratt á tölti í framtíðinni er hér ein undan Asa frá Kálfholti, hryssa á sjötta vetur, Lind frá Baldurshaga. Video HÉR tekið eftir 3 vikna vetrarþjálfun en hún var þá búin að vera í fríi frá því í Júlí með tilheyrandi aukakílóum. Var fyrst tamin í fyrravetur og á mikið inni.
Allar upplýsingar alfholar@alfholar.is
Skrifað af SÁ og HMÓ
27.12.2011 00:13
Gleðileg Jól - Holiday Greetings
Kæru vinir nær og fjær!
Eigið yndislega jólahátið og megi nýja árið færa ykkur gleði, gæfu og góða heilsu. Þökkum samveru og góðar stundir á liðnu ári.
Hittumst heil á því nýja!
Jólakveðja frá okkur öllum á Álfhólum!
Dear friends,
Merry Christmas to you all near and far. Wishing you good times, good cheer and a happy new year!
Holiday greetings from everyone at Álfhólar!
Skrifað af Söru Ástþórsdóttur
19.12.2011 21:47
Meiri snjó, meiri snjó....
Var að vafra á netinu um daginn, og fannst ekki vera neinar fréttir neins staðar..... gleymdi alveg að líta í eigin barm enda kominn mánuður síðan eitthvað kom hérna inn!
Eftir rigningarsamt en hlýtt haust skipaðist skjótt veður í lofti. Svo fljótt að það munaði minnstu að ég missti af flugvélinni 25 nóvember til Þýskalands þar sem ég var boðuð með námskeið, vegna þess að ég þurfti að keyra undir löglegum hraða á Reykjanesbrautinni vegna hálku! Alveg með eindæmum hvað maður lætur veturinn alltaf koma sér á óvart þótt það sé langt liðið á hann ;)
En vá, loksins fylgdi skemmtilegt útreiðarfæri vetrinum. Það hefur nefnilega oft verið svo að hér hefur bara fryst á auða jörð og allt gaddfreðið og útreiðarfærið núll spennandi!
Það er verst ef að það hvellspringur á hrossunum hjá manni þegar það þiðnar! Annars erum við frekar mikið að nota reiðhöllina þrátt fyrir færið, en það er gaman að láta skyrpa úr hófum á mjúkum snjónum annað slagið. Allavega leiðiðst Sóllilju það ekki og mér leiðist það enn minna að ástarfundur hennar og ónefnds stóðhests hafi ekki gengið upp í sumar enda bara gaman að hafa þessa kátu pæju undir hnakk :)
Ég ætlaði líka að taka ægilega myndasyrpu af Mánastein nýjárnuðum... svona áður en hann yrði enn og aftur haltur á einhverri löpp...... en það gleymdist víst að kenna myndatökumanninum á myndavélina, svo hann missti af öllum bestu mómentunum. Hann fékk svo að heyra það eftir á að maður heldur takkanum inni, en ýtir ekki á við hverja mynd, þetta er sko vél sem á að taka 8 ramma á sekúndu en ekki bara einn!!! ;)
En kappinn hangir enn á löppunum og bætir sig vonandi bara fram að næstu myndatöku. Hann er búinn að vera hálfgerð óheillakráka þessi hestur, slasaður á framlöpp á fjórða vetur, hóstandi langt fram eftir vetri í fyrra, og svo loksins þegar hann hætti að hósta fór hann að fá dularfulla helti í afturfót sem ekki fannst nein skýring á, nema við komumst að því að hann svaraði beygjuprófi á kjúku. En hann á langt í land með rétt rúma 4 mánuði í tamningu þegar allt er talið og kominn á sjötta vetur :/
Það var aðeins grænna úti í Þýskalandi síðustu helgina í Nóvember þar sem ég dvaldi í boði Kathrin Kasper sem keypti hann Andvara Eldvakason fyrir einu ári síðan. Þar var ég með helgarnámskeið fyrir ca 10 manns, ágætis tilbreyting :)
En þessi snemmbúni vetur hefur sína ókosti, því aldrei hefur þurft að byrja að gefa hrossum eins snemma. Systurnar Gáta og Gæska passa vel uppá hvor aðra í stóðinu. Það er reyndar búið að skilja þær að núna því Gáta er komin inná hús en Gæska er fylfull við Kraft frá Strönd. Hún kom geld heim frá hesti í haust, og það var örþrifaráð þegar langt var liðið á september að halda henni og Kraftur sá hestur sem var ekki náskyldur henni og var innan seilingar. Hvort það er gáfulegt að starta 1st verðlauna hryssu svona seint verður bara að koma í ljós.... en mér hefur tekist að rétta af hryssu sem var haldið um miðjan september fyrir fjórum árum en kastaði um miðjan júní í sumar, og hef ég þó ekki alltaf náð henni á folaldagangmáli.
Og svo var ég að dusta rykið af Gauk frá Strandarbakka eftir eins og hálf mánaðar hvíld. Það voru meiri mistökin hjá eigandanum að setja þennan hest til mín í þjálfun með sölu í huga.... ég tími bara ekkert að selja hann! Með skemmtiegri fimmgangshestum sem ég hef verið með, hefur hreinar og rúmar gangtegundir, og rífur vel í skeið þó það sé lítið þjálfað, enda hesturinn ekki tamin nema nokkra mánuði.
Nú, svo vonar maður að snjórinn fari hvergi og það verði flennifæri frameftir vetri :)
Skrifað af Söru Ástþórsdóttur
18.11.2011 09:00
Fjör, Fas og Fótaburður!
Það er alveg á hreinu að hápunkturinn hjá Álfhóla "crewinu" í sumar var að taka þátt í ræktunarbússýningunni á Landsmótinu. Það var ákveðið með frekar stuttum fyrirvara að vera með því okkur hafði ekki hugnast tímasetningin fyrir ræktunarbússýningar, en þær áttu upphaflega að vera um miðjan dag á fimmtudag. En Maggi Ben fékk því breytt og taldi okkur á að koma og vera með, því hann hafði trú á því að við hefðum fullt erindi.
Þeir sem voru eitthvað svekktir út í mig að hafa ekki mætt með Dívu í töltið á Landsmótinu, þögnuðu alveg, því þeir fengu alveg nóg að sjá af henni og hreint ekki léleg skipti að fá að þeyta henni trekk í trekk eftir beinu brautinni þar sem fasið og frelsið í henni nýtur sín best. Og Díva fékk nóg að snúast, kom líka fram með föður sínum Arð á Laugardag, sem tók við fyrsta sætinu fyrir fyrstu verðlauna afkvæmahesta. Það voru sumir hissa á því af hverju ég reið henni ekki í veðlaunaafhendingunni í 7 vetra flokknum.... Mér þótti tvær innkomur sama daginn vera meir en nóg á hrossi sem gefur allt í botn þegar beðið er um.
Þrumufleygur fékk líka heldur betur að snúast og auk yfirlitsýningar á föstudeginum var hann líka í Þóroddshópnum, en hann stóð sig vel og engan bug að sjá á honum þó lagt væri á hann í þriðja sinn á föstudagskvöldið. Hann var eitt af flaggskipum hópsins þó aðeins fimm vetra sé!!

Dimmir tók hraustlega á því á skeiðinu hjá Leó, svona allavega þegar hann skeiðaði, því kallinn átti til að kynda full mikið undir kötlunum ;)

Klárhryssurnar í hópnum. Hans Þór á Indíu, Janus á Gjósku og Hrefna María á Sóllilju.
Það var smá hausverkur að finna knapa fyrir sýninguna, en 4 þessara hrossa höfðu varla fengið annan knapa á bak sér nema mig sjálfa. Tveir vinir Jonna voru til í "geim" og svo var reynt að raða öllu saman eins og best þótti passa. Þökkum þeim félögum Janusi og Hansa Hvergerðingum kærlega fyrir hjálpina :)
:
Þær voru kátar Hrefna og Sóllilja ;) "Svona hlýtur Beyoncé að líða eftir hverja tónleika hehehe" kom upp úr Hrefnu eftir laugardagskvöldið. "Þvílíkt kikk að láta 6000 þús mans klappa í takt og hrópa stuðnings orðum að manni!!"

Gjóska og Janus stóðu sig vel.

Og Hansi fór vel á Leiknisdótturinni Indiu.
Það eru sumir sem segja að það sé lítið að marka svona ræktunarbússýningar, hrossin séu öll yfir viktuð á botnum og 300 gramma hlífum. Það er því gaman að segja frá því að öll hrossin okkar voru á 8 mm skeifum fyrir utan Indiu sem var á léttu fylliefni að auki. Þyngstu hófhlífarnar voru 200 grömm en allflest voru með 120-155 gramma hlífar.
Þar kepptu 12 frábær ræktunarbú um þann heiður að fá að koma fram á Laugardagssýningunni. Eftir föstudaginn kom í ljós að það voru tvö bú jöfn að stigum og var þeim att saman í einvígi á laugardagskvöldið, en auk Álfhóla voru það Syðri-Gegnishólar sem var valið hrossaræktunarbú 2010. Skeiðgaffallinn hjá þeim á Laugardagskvöldið var vígalegur og urðum við því að lúta í lægra haldi í þessu einvígi.
En við vorum engu að síður hæst ánægð með árangurinn og stuðning þeirra sem kusu okkur og veittu okkur þann heiður og gleði að vera með á laugardagskvöldinu. Löngu síðar er maður að hitta fólk á förnum vegi sem lýsir yfir ánægju sinni með ræktunarbúsýningarnar sem sumum þótti toppurinn á mótinu....ekki leiðinlegt að vera þátttakandi í því :D
Læt hér fylgja með nokkur video af stemmingunni.
Skemmtilegt video af bæði Álfhólum og Efri-Gegnishólum á laugardagskvöldið.

Sýningin okkar á föstudaginn.
Sýningin á Laugardaginn.

Takk fyrir okkur þetta var magnað!!
Og svona í lokin er hér video af afkvæmasýningu Arðs frá Brautarholti.
Ætli það sé ekki toppurinn á tilverunni að þjóta áfram á fljúgandi tölti án þess að þurfa að halda í tauma, mér finnst það allavega ;)
Það má í lokin geta þess að Díva á von á fósturvísafolaldi með áðurnefndum Þrumufleyg sem mun væntlanlega líta dagsins ljós í maí á næsta ári ef allt gengur upp.
Díva sjálf heimsótti Óm frá Kvistum seinnipartinn í ágúst, en það stopp hefur líklega verið of stutt, því það bar engan ávöxt, enda kannski svoldið seint í rassin gripið og kannski má kalla það græðgi að heimta tvö folöld undan sömu merinni á ári. Hún kom því á hús fyrir viku síðan, eiganda sínum til ánægju og yndisauka og byrjar betur en nokkru sinni fyrr, það er varla að maður þori á bak svo maður skemmi ekki neitt ;)
Gjóska er hinsvegar fylfull, líka við Þrumufleyg, verður gaman að sjá og bera saman hálfsystkinin undan þessum jafnöldrum, Dívu og Gjósku.
En að setja upp svona sýningu er ekki bara að sitja á hrossunum og gott aðstoðarfólk er gulls ígildi.
(Skrifað af Hrefnu Maríu).
Þó við vorum einungis með 6 hross og 6 knapa þá er heilmikið umfang að koma öllu af stað og hafa allt klárt á réttum tíma, finna reiðtygi og hafa búningana klára.

Strákarnir voru nú ekkert yfirsig ánægðir þegar þeir sáu mig (Hrefnu) koma með allt siflurskrautið og byrjaði að festa það allt á jakkana og ekki má gleyma silfurglans bindinu!!!
Sagði þeim bara að finna Diskó-Pallann í sér því þetta væri sko Gordjöss!! ... Þeir voru nú ekki alveg á þessu en eftir að ég kom þeim öllum í gallann fengu þeir Módjóið aftur... og held ég í margfölduðu veldi í þessum líka gordjös búningum!!

Guðrún Elín ein af hjálparhellunum fékk ekki verra hlutverk en að passa Thunderinn :) Thanx!

Þessi sá um að allir væri í góða skapinu og engin "smala/stress" veiki færi um mannskapinn og jú að allir væri stífbónaðir! Thanx Jódís mín ;)

Allt komið á fullt. Rakel frænka sér hér um að taglið á Dimmi sé rétt kembt :)

Mamma (Rósa) sá um að Janni væri tiptop á Gjósku, taglið verður bara að vera í lagi!

Díva... þó þú sért díva færðu bara gamlan, ljótan, gulan múl á hausinn!!! ... hmmm... Sara á ég ekki að gefa þér glimmer múl á hana í Jólagjöf??

Mesti tíminn hjá mömmu fór nú reyndar í að dást að Fleygunum sínum :) ... ótrúlega skiljanlegt svo sem.

Rakel með Sóllilju... ekkert unglinga vesen á þessari ungu stelpu. Hjálpaði okkur mikið sem og hinar góðu vinnukonurnar okkar í sumar. Takk stelpur Andrea, Nína, Þórunn, Rakel og ekki síst Hjördís sem var hægri hönd Söru á Landsmótinu. Þær eiga mest allan heiðurinn af videounum og myndum af atriðinu okkar.

Þruman góða!! Mestu rokkarar kvöldsins klárlega ;)

Þessi fékk örlítin einkenni "smala veikinnar" jájá bara svona meðan allir vour að fá axlarpúðana sína, bindin, réttu hófhlífarnar, efrimúl, neðrimúl, skáreim.... og hvað ekki hvað... en það þarf nú eitthver að sjá um að allt sé í topp lagi hehehe..

Mamma og Jódís tilbúnar í geimið ....
og við líka ;)))

Hópurinn komin á bak og reddí að rokka !!
-Álfhólar, Hrefna María out-
Skrifað af Söru Ástþórsdóttur
Eldra efni
- 2012
- Janúar (1)
- 2011
- Desember (2)
- Nóvember (1)
- Október (2)
- September (4)
- Ágúst (3)
- Júlí (4)
- Júní (1)
- Maí (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (1)
- Janúar (1)
- 2010
- Desember (4)
- Nóvember (1)
- Október (2)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (6)
- Maí (2)
- Apríl (2)
- Mars (2)
- Febrúar (1)
- Janúar (3)
- 2009
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (4)
- September (5)
- Ágúst (4)
- Júlí (5)
- Júní (6)
- Maí (2)
- Apríl (2)
- Mars (2)
- Febrúar (1)
- Janúar (5)
- 2008
- Desember (6)
- Nóvember (5)
- Október (5)
- September (3)
- Ágúst (2)
- Júlí (5)
- Júní (6)
- Maí (4)
- Apríl (4)
- Mars (3)
- Febrúar (3)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (7)
- Nóvember (7)
- Október (4)
- September (4)
- Ágúst (5)
- Júlí (3)
- 2006
Flettingar í dag: 632
Gestir í dag: 247
Flettingar í gær: 1334
Gestir í gær: 397
Samtals flettingar: 1569174
Samtals gestir: 350239
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 14:54:13
ÁLFHÓLAR | SARA ÁSTÞÓRSDÓTTIR | 861 HVOLSVÖLLUR - ÍSLAND | Tel: (+354) 898 8048 | ALFHOLAR@ALFHOLAR.IS
