Vindótta kynið í Álfhólum

Vindótti liturinn í Álfhólum kemur með rauðblesóttum hesti frá Einari á Skörðugili sem bjó þá á Hesti í Borgarfirði. Einar sendi Valdimari afa fáeina graðfola í uppeldi og einn af þeim var Kraki frá Hesti sem var undan Verði frá Árnanesi og Prinsessu Nökkvadóttur jarpvindóttri að lit, svo að sjálfsögðu var þarna hornfirkst blóð í bak og fyrir. Það komu út af þessum hesti ágætis hross sem báru litinn áfram en Móna frá Álfhólum dóttirdóttir hans er líklega sú sem reynst hefur allra best.
 

 
Frændurnir Mánasteinn og Máni frá Álfhólum.

 
Vinnufólkið í Álfhólum á leið í reiðtúr á fjórum vindóttum sumarið 2006.
(frá vinstri: Sara og Fengur, Saga og Ronja, Pernille og Silfurbrá og Daníel og Fluga)  

   
Fengur frá Álfhólum til vinstri og Mózart frá Álfhólum til hægri voru hestarnir hennar Söru á Reiðkennarabrautinni.
Myndirnar tók Herdís Reynisdóttir á inntökuprófinu haustið 2006.

 

Flettingar í dag: 1037
Gestir í dag: 265
Flettingar í gær: 1398
Gestir í gær: 305
Samtals flettingar: 888161
Samtals gestir: 189044
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 22:00:15

ÁLFHÓLAR | SARA ÁSTÞÓRSDÓTTIR | 861 HVOLSVÖLLUR - ÍSLAND | Tel: (+354) 898 8048 | ALFHOLAR@ALFHOLAR.IS