Fréttir

29.8.2010

Slagurinn við þá bestu



                                                                                                                                              Mynd Óðinn Örn
Það er nú ekki alltaf sem að hófapressan veitir manni athygli þegar maður mætir í brautina, en Díva fékk óskipta athygli Eiðfaxa manna að lokinni forkeppni í tölti á Íslandsmótinu á föstudaginn.  Við mættum í braut í fyrri hálfleik keppninar og vorum lengi vel í öðru sæti með 7.70 í einkunn, en toppurinn er heitur og margir vilja komast þangað og næstsíðasti hestur í braut ruddi okkur að lokum niður í B-úrslit. 

 




Ég var að vonum ekkert voðalega kát yfir því enda B-úrslitin riðin samdægurs og kannski fór ég ekki alveg með rétta hugarfarið inní þau, því mér fannst eiginlega allt of mikið að ríða tvenn úrslit á tveimur dögum á svona ungu hrossi þó svo að þjálfunarástandið hafi batnað til muna síðasta mánuðinn.  Díva stóð sig vel í B-úrslitunum og eftir hraðabreytingar vorum við efstar.  Svona eftir á að hyggja hefði ég kannski getað tekið meira á henni á yfirferðinni, enda kom það í ljós þegar Siggi Óli ætlaði fram úr okkur, þá setti hún í "óverdrævið", en ég átti nottla að vera búin að setja það á sjálf löngu áður! Hvort þetta réði úrslitum um lokatölur skal ég ekki segja en við enduðum í sjöunda sæti með 7.97 og misstum af því að vera í beinni á RÚV ;)

Hér má sjá sjá umfjöllun um Dívu í nokkrum fréttum Eiðfaxamanna og greinilegt að hún var þeim hugleikin. 

http://eidfaxi.is/frettir/2010/08/im-2010-stada-i-tolti-eftir-50-keppendur

http://eidfaxi.is/frettir/2010/08/tolthryssan-diva

http://eidfaxi.is/frettir/2010/08/im-2010-b-urslit-i-tolti

http://eidfaxi.is/frettir/2010/08/myndasyrpa-ur-b-urslitum-i-tolti

En sjöunda sætið á Íslandsmóti þeirra sterkustu er ekkert til að kvarta yfir og kannski bara besta niðurstaðan fyrir mig fyrst ég náði ekki strax að hanga í A-úrslitum.   Ég á þá kannski frekar möguleika á því að mæta með hana aftur um næstu helgi á Metamótið og bæta um betur ;)

Skrifað 29.8.2010 kl. 21:41 af Söru Ástþórsdóttur

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.8.2010

Ræktunarbúsýning á Stórmóti Geysis

Við frænkurnar vorum í rokna stuði í lok Júlí mánaðar. Ætli við höfum ekki verið svo yfir okkur ánægðar að vera loksins komnar í hnakkinn aftur að okkur fannst ekki annað hægt en að vera með í ræktunarbúsýningu sem Geysir bauð upp á á Laugardagskvöldið á Stórmóti Geysis sem haldið var um Verslunarmannahelgina. 

Stenft var með Dívu, Dimmir, Þrumufleyg, Gjósku og Indíu. En þó nokkur forföll urðu á hrossum á síðustu stundu þar sem Díva átti að taka þátt í a-úrslitum í tölti strax á eftir sýningunni og Gjóska marðist á hóf daginn áður og draghölt. Föstudagskvöldið fór í að skoða hvað væri til í búllinni á Álfhólum og hver hentaði best til að sýna hvað. 




Hinn ungi og sperti Þrumufleygur var tekinn inn úr hryssum 3 dögum fyrr, járnaður og Jonni prufaði kappan. Það var eins og hann hefði aldrei dregið undan folanum og hann væri í fullri þjálfun, sem sagt Þrumarinn var klár!!. Þrumufleygur og John Kristinn áttu feikna góða innkomu, enda ekki annað hægt en að hrífast að þessum gæðing. 



Já það vantar ekki fagran limaburð í þennann. "Glampi gerði þetta 10 vetra... þessi er aðeins 4 vetra!!!".. heyrðum við í fólki segja eftir sýninguna.



Það mætti halda að hann sé gerður úr gúmmíi, svo mikil er teygjan í þessum kraftmikla pjakk.



Sara reið Dimmi sínum sem fyrr um morgunin hafði þreytt B-úrslit í A-flokk og staðið sig vel.   Þess má geta að Dimmir og Þrumufleygur eru náskyldir, undan hálfsystkynunum og fyrstu verðlauna hrossunum Tígur og Þyrnirós sem eru undan Vöku frá Álfhólum.


....Svo var tekin ein upphitunarbuna á Dívu þar sem hún var að hita upp fyrir Tölt úrslitin. 



Hrefna María sat Indíu sína Leiknisdóttur og dóttur Svertu frá Álfhólum. 5 vetra efnileg keppnis hryssa sem er hálf systir Zorró sem gerði góða hluti með hana á brautinni fyrir nokkrum árum. 



Leó Geir reið á Móey Eldjárnsdóttur og dóttur Móeiðar Kjarksdóttur. 5 vetra hryssa sem fór í 7.90 fjögurra vetra.
"Sara, jakkinn gleymdist!" hahha
Þess má geta að Móey er sónuð fylfull við Þrumufleyg!



"Týndi sonurinn Daníel Smárason á Sóllilju". Danni vann í mörg sumur hjá okkur þegar hann var yngri, er núna komin í nágrenni við okkur, nánar tiltekið á Ármót.


Hér er Video af showinu þar sem Shakira var til hávegar höfð og hrossin dilluðu sér við Waka Waka... 


Skrifað 15.8.2010 kl. 20:11 af "Álfhólar team"

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.8.2010

Stórmót Suðurlands


                                                                                                                                                Dimmir og Sara

Hestamennskan hér á Álfhólum er hægt og rólega að rísa upp úr öskustó eftir flensuskrattan sem hefur tröllriðið öllu síðustu misseri.

Það var þó ekki fyrr en um síðustu mánaðarmót, í byrjun Júlí að ég sagði hingað og ekki lengra, byrjaði að járna allt uppá nýtt og koma öllu í gang.  Þá hafði ég varla sest í hnakk frá því í lok apríl, í rúma tvo mánuði!  Ég var að spá í að byrja á því að fara á reiðnámskeið, svo ryðguð var ég orðin, og harðsperrurnar sem ég fékk eftir fyrsta daginn..... við skulum ekki tala um þær!

Hrossin voru svona og svona, og sum höfðu bætt alveg svakalega á sig, eins og til dæmis hún Díva mín sem líktist frekar flóðhesti en venjulegu hrossi eftir hvíldina. Hefði nú getað startað henni eitthvað fyrr, en hún slasaðist á afturfæti um miðjan júní og fékk þ.a.l tvær auka vikur í hvíld.

Um helgina var svo stórmót og miðsumarssýning á Hellu þar sem voru yfir 50 skráningar í öllum  fullorðinsflokkunum og það er ánægjulegt að það sé að lifna svona yfir hestamennskunni.

Í B-Flokk var ég með Gjósku, og fékk hún 8.30 eftir þokkalega sýningu og vantaði herslumuninn til að komast í B-úrslit.  Mér fannst ég reyndar ekki ná nógu vel til hennar og svo kom í ljós daginn eftir að hún var orðin hölt á framfæti og er enn. Þar með er hún að brenna inni með síðsumarssýninguna.

,
                                                                                                                                                Díva og Sara

Systkinin undan Miðfells-Dimmu stóðu sig með ágætum.  Dívan er enn svoldið þung á sér eftir langa stöðu og var svo sem ekkert að toppa sig, en í forkeppni í Tölti skoruðum við 7.20 og í úrslitum 7.57 og uppskárum fjórða sætið.



                                                                                                                                            Dimmir og Sara

Viku fyrir mót byrjaði ég að þjálfa Dimmir aftur.  Ég ætlaði að byrja á honum líka í byrjun Júlí en hann byrjaði þá aftur að hósta mér til mikillar ánægju eða þannig og fékk 3 vikur í viðbót í frí.

Í annað skiptið inná hringvöll og einkunn í forkeppni 8.43 og önnur inní B-úrslit.  Eftir tölt og brokk stefndi allt í öruggan sigur, en úthaldsleysið gerði vart við sig og skeiðið klikkaði. Hann endaði þvi aftur annar í B-úrslitum með einkunina 8.52. Ég fékk boð um að ríða í A-úrslitum á honum vegna forfalla, en ég ákvað að geyma það til betri tíma og koma hestinum í betra form.

Á laugardagskvöldið tókum við einnig þátt í ræktunarbússýningu en meir um það síðar.

Skrifað 3.8.2010 kl. 10:20 af Söru Ástþórsdóttur

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.7.2010

Töltmyllan



Sum folöld eru "fótógenískari" en önnur.  Og nei, hann er ekki undan Álfi frá Selfossi þó að skjóttur sé.
Hann vakti strax athygli mína þessi þegar hann tölti kattmjúkur upp úr karinu og það var leikur einn að smella af honum nokkrum flottum myndum þegar hann var viku gamall.



Hann er undan keppnishestinum hennar Rósu Valdimars, honum Íkon frá Hákoti sem er 9 töltari og Rauðhöttu frá Álfhólum, Feitu Skjónu sem við köllum þvi það var aldrei hægt að koma henni í sýningarhæft form þegar hún var yngri þótt ágæt væri.  Reyndar lenti hún alltaf í að vera svona sumarþjálfunarhross og kannski ekki við öðru að búast en að hún safnaði á sig þess á milli!



Íkon þarf svo sem ekkert að kynna neitt frekar, en hann og Rósa hafa verið í toppbaráttu á mörgum töltkeppnismótum síðustu tvö ár þar sem Rósa er sko ekkert að keppa við neina áhugamenn heldur bara þá bestu ;)



Það er ekki nóg með að töltið sé dillimjúkt með háum hreyfingum, heldur er liturinn stingandi. Ætli að það megi ekki kalla hann svartskjóttan frekar en brúnskjóttan?  Fleiri myndir hér




Það er gaman að segja frá því á Rauðhatta fékk mikla athygli fyrir annað folald á síðasta ári en sá var einnig skjóttur undan Dáðadreng, Víkings og Dimmusyni.

Rauðhatta er af gamla kyninu í Álfhólum undan Tígur og Bylgju frá Álfhólum og ég hef alveg lúmskt gaman af því hvað það er stutt í eldgamla stofna í gegnum Rauðhöttu. Bara í gegnum móðurina er Nökkvi bæði langafi og langalangafi hennar og þá er ótalin Hornafjarðartengingin í gegnum Tígur sem er margslungnari og ég ætla ekkert út í hér.   En ekki nóg með það þá er Hindisvíkurhesturinn Sörli (141 ef ég man gömlu ættbókina rétt) frá Dalkoti sem fæddur er 1926 langalangafi hennar líka!  Sörla keypti afi Valdimar fyrir 1950 og átti í tvö þrjú ár og eitthvað var hann notaður hér um slóðir.

Undan alsystur Rauðhöttu, Unni, eigum við Urði Ögradóttur, ósýnda hryssu sem gefið hefur eina fyrstu verðlauna klárhryssu með 9 fyrir tölt, hana Artemis sem Valdi Hrefnubróðir á og tryppin lofa góðu.  Unnur veiktist illa veturinn eftir að Urður fæddist og var felld.  Urður er því eina afkvæmið hennar. 

Rauðhetta er önnur alsystir sem er með kringum 7.50, klárhryssa. (Hugmyndaríkin í nafnavali alveg að brillera)



Fyrsta afkvæmið undan Rauðhöttu kemur til tamningar fyrst í sumar því hún var töluvert fullorðin þegar henni var haldið fyrst undir hest.

Þessi huggulegi foli undan henni er hins vegar á leið til Finnlands og er einnig undan Íkoni, tveggja vetra gamall í dag (mynd síðan 2009)

 

Skrifað 25.7.2010 kl. 23:51 af Söru Ástþórsdóttur

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.7.2010

Attention English readers



The English News page now has been updated. Enjoy!

Skrifað 12.7.2010 kl. 23:06 af vefstjóra

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.7.2010

Þeir skjóttu standa sig

Hrefna María skrifar:

Pestin tíðnefnda hefur herjað á okkur síðustu misseri en nú eru hrossin á Álfhólum svona að stíga upp úr flensunni og flest að komast í lag. Það léttir hressir og kætir að vera komin í hnakkinn á ný. 

Ég (Hrefna) var þó fyrr farin að hreyfa eða fyrir rúmlega 2 vikum síðan, því svo virtist að hrossin sem ég var með í Reykjavík væru að ná sér fyrr heldur en þau sem voru hérna fyrir austan. Líklegasta skýringin er sú að ætla má að ég hafi fengið pestina á undan. 

En hrossin virtust frekar spræk og ekki á þeim að sjá að hafa verið í 8 vikna veikindapásu. Ég og John erum greinilega með keppnissýki á háu stigi því að við stóðust ekki mátið og skráðum okkur á Gullmótið sem haldið var í Reykjavík um síðustu helgi, já á eiginlega óþjálfuðum hrossum :/ .... en við höfum greinilega þjálfað vel í vetur og standa hrossin vel að því.

John Kristinn fór í slaktaumatölt T2 á stóðhestinum Kraft frá Strönd sem er Kjarksonur frá Egilsstaðabæ. Gekk það frábærlega og stóðu þeir efstir eftir forkeppni með 6,77 í einkunn. Úrslitin voru riðin svo á sunnudeginum og sigraði hann þau glæsilega með 7,17 í einkunn.  

 
Mynd: Nína Hjartardóttir

Kraftur er í eigu míns og John Kristins. Hann hefur nú ekki verið formlega kynntur hérna á síðunni en þetta er ákaflega fallegur og góður hestur, frábært geðslag og ekki skemmir nú liturinn og prúðleikinn fyrir honum. Þetta er nú án efa ekki eina skiptið sem þessi hestur mun láta sjá sig á keppnisbrautinni enda mikið efni í frábæran keppnishest hvort sem er í slaktaumatölt, fjórgang eða tölt. 


Mynd: Maríanna Gunnarsdóttir

Hægt er að sjá fleiri myndir, video og upplýsingar um þennan gullmola HÉRNA.


Mynd: Maríanna Gunnarsdóttir

Ég gat nú ekki látið John einan um að baða sig í sviðsljósinu á þessu móti og því skellti ég mér á Mammon í fimmgang og gæðingaskeið. Í fimmganginum gengu hlutirnir ekki alveg upp og var Skjóna bara sleppt út í stykki um hádegisbil eftir þá forkeppni. Síðan var nú bara haft það huggulegt í góða veðrinu og horft á hestamót það sem eftir lifði dagsins ....  eða þangað til að þulurinn fór að tala um að Gæðingaskeiðið væri að fara byrja. Obbobbobbb ... og ég og Mammon skráð í það. Þá var Skjóni tekin úr stykkinu sínu belgfullur og úttroðinn af grasi, lagt á hann á 10 sek og riðið beint á gæðingaskeiðsbrautina og viti menn... Ég og Mammon skoruðu vel og unnu gæðingaskeiðið með 6,58 í einkunn. Verð að viðurkenna að mér fannst þó skemmtilegast að vinna strákana sem heimtuðu að útreikningarnir yrðu yfirfarnir sem var svo gert en úrslitin stóðu. :)



Ég stóðst nú ekki mátið að láta taka mynd af mér með fyrsta skeið-bikarinn minn, og fyrstu verðlaun okkar Mammons. Ég og John komu því heim með sitthvor verðlaunin eftir helgina og eru ekki frá því að brúnskjótt sé orðið okkar uppáhalds litur :)  

Skrifað 12.7.2010 kl. 18:31 af Hrefnu Maríu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 962
Gestir í dag: 235
Flettingar í gær: 1231
Gestir í gær: 256
Samtals flettingar: 891560
Samtals gestir: 189822
Tölur uppfærðar: 10.9.2010 20:39:04

ÁLFHÓLAR | SARA ÁSTÞÓRSDÓTTIR | 861 HVOLSVÖLLUR - ÍSLAND | Tel: (+354) 898 8048 | ALFHOLAR@ALFHOLAR.IS